
Hola amigos! Jæja, þessi síða er sko klárlega að slá í gegn! 8 manns komnir inn á hana í dag
og hvorug okkar nennir að gera neitt á hana nema að blogga okkur sjálfum til skemmtunar haha! Svíít!
Rebekka ljúfan átti afmæli á mánudaginn svo við létum loks af því að fara á TheSimpsonMovie, sem er án efa alger tær snilld! Loving it. Ég hlæ að vanda mjög hátt og þegar ég tók eftir því að fólkið við a hliðina á á mér var ekki að hlægja að myndinni lengur heldur mér, haha, þá reyndi ég að temja mig aðeins! En why bother þegar Rebekka er lítið sem ekkert skárri hliðina á mér öskrandi af hlátri yfir salinn hahaha :'D En þetta var fab mynd, enda Simpson, sjaldan klikkað ^-^

Jæja, spennan eykst dag frá degi, við erum að fara til Svíþjóðar saman eftir 6 daga, ótrúlega spennandi híhí ^-^ En annars nenni ég ekkert að vera að blogga, ætlaði bara að láta í mér heyra 

Orð
-Dagbjört